Ingibjörg stendur sig

Mikið er ég ánægður með hana Ingibjörgu. Hún ferðast um heiminn og ber hróður okkar Íslendinga hvarvetna.

Ingibjörgu sem forsætisráðherra.


mbl.is Ingibjörg Sólrún heimsækir Mountain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilarúnk

Var það ekki sköllótta mannvitsbrekkan þessi Gunni sem kallaði skák "heilarúnk".

En hvað ef menn eru með Alsheimir eins og ég? Ég get voðalega lítið gert svoleiðis nú upp á síðkastið. Ég er meira að segja með gigt í hægri lófa.

 


mbl.is Skákhátíð Hróksins á Grænlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staffan í sætið!

Þetta líst mér á. Staffan er auðvitað einn glæsilegasti leikmaður sögunnar, mikil stórskytta og af glæsilegasta kynþætti Evrópubúa, Meðalfellshrossunum.

Þar að auki er hann Íslandsvinur og maður gat séð hve honum leið illa i hvert skipti sem hann skoraði mark gegn Íslendingum.

Ég er mikill Svíavinur og bjó ég þarna á gistiheimili í nokkra mánuði meðan ég var að ná mér eftir smá vesen þegar þriðja kellingin mín yfirgaf mig. Þá var ég líka á fraktaranum og kom lítið heim. Hún hefur víst orðið einmana kellingin á meðan ég var burtu og fundið sér einhvern nýjan.

Ég kom mér því fyrir í Lundi í nokkra mánuði og fór á sænskunámskeið. En þá byrjaði keppnistímabilið í fótboltanum hérna heima og ég skrapp heim til að sjá KR spila gegn Val og nennti ekki út aftur.

En mikið sakna ég Svíþjóðar og ekkjunnar sem rak gistiheimilið.


mbl.is Olsson og Lindgren taka við sænska landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forðum átti ég einn bloggvin

Ég eignaðist einn bloggvin í gær, ég missti hann í dag.

Farið hefur fé betra. Leiðinda íhaldsseggur.


Hvað eru þessir framsóknarmenn að væla?

Óþolandi væl í þessum framsóknarmönnum. Þeir geta jafnvel ekki verið friðs í Kína.

Ég er nú fæddur í sveit og ólst upp eltandi rollurassa um allar heiðar. Komst síðan til sjós og kaus Sósíalistaflokkinn og síðar Alþýðubandalagið uns Óli grís drap það. Nú kýs ég Samfylkinguna og er stoltur af.

Ég er mjög ánægður með Ingibjörgu mína sem lætur ekki vælið í framsóknarmönnum og ljósbleikum mannréttindakellingum æsa sig of mikið. Við þurfum að brjóta nokkur egg til að búa til eggjaköku. Það sagði Eggert Þorbjarnar í gamla daga og ekki laug hann.

Ingibjörg mín er líka KR-ingur. Getur það orðið betra?


mbl.is Mótmæli við Torg hins himneska friðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ungt og leikur sér.

Ég tók mér það bessaleyfi að fá þessa mynd að láni af síðu fjölskylduvinar míns, Snorra Guðjóns Bergssonar. Þess mæta drengs.

c_users_snorri_g_bergsson_documents_strakarnir_625413.jpg

Heldur þykir mér nú ólíklegt að blessuð börnin verði þetta brosmild þegar veislan er yfirstaðin. Timburmenn, ógleði og önnur vanlíðan tekur við eftir helgina. Ég er að vissu leyti ánægður að vera orðinn of gamall fyrir svona lagað. Ég man enn þá tíð frá minni æzku, af eigin reynslu, að sukkið var skemmtilegt meðan á stóð en erfitt þegar yfir lauk. Þetta virðast vera hinir heilbrigðustu unglingar sem verður vonandi ekki meint af bröltinu á Heimaey. Ég óska þeim alls hins bezta og skemmtunar góðrar. 

 

 


Ólátabelgir.

Fréttir þessa dagana einkennast af skrílslátum óuppaliðs ungviðisins sem engu eirir. Mér virðist þannig vera komið fyrir fólki í dag, að skeytingarleysið er algert gegn boðum og bönnum. Tilgangurinn helgar ekki meðalið hér. Þarna er öðru fólki vísvitandi valdið ónæði með tilheyrandi óþægindum og kostnaði.

Réttast væri að rassskella þess háttar ófriðarseggi sem þessa.


mbl.is Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband