Senda íhaldsliðið, Valsmenn og Framara á þetta mót

Það ætti að herða þessar veimiltítur til betri vegar. Íhaldsliðið hefur lifað í sínum silkiklúti alla sína tíð og aldrei komist í snertingu við eitthvað karlmennskulegra en húsflugu. Ef húsfluga er skoðuð í nærmynd þá hefur hún það umfram Gísla Martein að henni vaxa andlitshár. Safamýrarkellingarnar í meistaraflokki karla þyrftu ekki að farða sig fyrir átökin. Farðinn myndi líka fara að leka þegar tárin færu að renna. Það er ljótt að sjá á stúlkukindum.

KFUM hópurinn frá óæðri (Hlíðar)endanum hefði gott af þessu líka, í stað þess að liggja á hnjánum allan daginn biðjandi í kapellunni í von um þeir verði einhvern tímann jafn miklir og stóri bróðir sinn í KR. Það er tímasóun því það gerist aldrei. Við KR-ingar þurfum ekki á þessu að halda því eins og félagi Bubbi söng þá erum við harðir allir sem einn.


mbl.is Ruddaboltinn aldrei ruddalegri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband