Fjandans Framsóknarmenn

Þeir bera ekki virðingu fyrir einu né neinu og nú er flugsaga okkar Íslendinga menguð með skemmdarverkum. Ég segi og skrifa að það eru engir nema Framsóknarmenn svona skeytingarlausir í garð annarra. Nú er bara að yfirheyra þessar örfáu hræður sem aðhyllast þennan óárans flokk. 

Tegndasonur minn einn er Framsóknaríhald. Það eitt er hörð refsing fyrir syndir gamals manns sem vill dætrum sínum allt hið besta. Hann er þó ekki vandalisti í eðli sínu þó líklegt þyki mér að pólitískur hugsunarháttur þessara gemlinga með úðabrúsana sé svipaður. 

Svei attan og skamm!


mbl.is Skemmdarverk á Þristinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Hugsa þessir úðabrúsagemlingar eitthvað?

En hvað var vaktin í flugturninum að dreyma meðan þeir voru að príla yfir girðinguna? 

Sverrir Einarsson, 7.9.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ekki fer maður upp í flugvél á næstunni fyrst náttuglurnar á flugvellinum sjá ekki betur en þetta. Auk þess kann ég betur við mig á sjó.

Sigurður Sigurðsson, 7.9.2008 kl. 22:40

3 identicon

Sennilega hefurðu rétt fyrir þér.Ég hafði samúð með þessum krökkum, en nú sé ég að ekkert er heilagt. Afbrota og skemmdarfýsninni eru engin takmörk sett. Þetta eru bara ótýndir glæpamenn sem eiga ekkert gott skilið. 

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband