$%($$)$($($(=%)##&/#)=$%Ö%)%$($U((#(
2.10.2008 | 13:59
Af drykkjusýki eflaust dey
dátt er það um róna.
En minna virði er þó ei
en okkar veslings króna.
Ég stundum fell og fæ mér vín
á fylleríum lengi.
En aldrei fell ég elskan mín
eins og krónugengi.
Og meira að segja mellur þær
ég mætti oft í landi.
Ku kosta meira, báðar tvær
ef krónu eykst nú vandi.
En getur nú ekki'ann Harði Geiri
gert oss alla ríka?
Verðlag hækkar og vextir meiri
en vergjarnasta píka.
Flokkur: Kvennafar og fyllerí | Facebook
Athugasemdir
Af þessu vísukorni má ráða að fólk hefur val. Við höfum alltaf val. En þó má sjá að Pegasus hefur komist í geislavirku hafrana? já eða bússið?..
hallgerður (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 14:32
Á víðavangi vina mín
fer valið gott í frúna.
En betri kaup er brennivín
en bensínlítrinn núna.
Þeir Pegasus og sankti Pétur
puða fyrir trúna.
En geislavirkt góðmeti étur
graðfolinn núna.
Sigurður Sigurðsson, 2.10.2008 kl. 14:52
Hehe alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 2.10.2008 kl. 19:33
Víða til þess vott ég fann
þó oftast vendist hinu
Að guð á margan gimstein þann
er glóir í mannssorpinu......Bólu Hjálmar
Hallgerður (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 19:48
Sigurður; Þú bara verður að koma með nokkrar svona á http://blekpennar.com því þar verður þér svarað fullum hálsi á hinn skemmtilegasta máta, af nokkrum hagyrðingum. Því lofa ég þér!!!
Munið frjálsu bloggsíðuna; http://blekpennar.com Kær kveðja, Björn bóndiïJðSigurbjörn Friðriksson, 2.10.2008 kl. 21:47
Víða til þess vott ég finn
er venst ég þess' og hinu.
Að margan á Glitnir gjaldeyrinn
er glóir í Baugssorpinu.
Sigurður Sigurðsson, 2.10.2008 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.