Trúskipti
20.1.2009 | 22:25
Nú byltingin kemur úr borgara ranni
og brýst fram í þessari hrinu.
Samfóið mistókst að verða að manni
en mellaðist hjá íhaldinu.
Forustan feiga nú hrekjast skal burt
og framtíðarhópur út gengur.
Hyskið skal frá, mér er skítsama hvurt
skandall að hafa það lengur.
Stjórna mun Steingrímur Joð. öllu hér
og stjarnan úr austri upp rísa.
Hið gjörspillta íhald í Gúlagið fer
og gálgann, ef því er að vísa.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
frábær vísa :)
Óskar Þorkelsson, 20.1.2009 kl. 22:33
Stalín vissi sínu viti. Sósíaldemókratar eru vissulega höfuðstoð borgarastéttarinnar.
Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 22:52
Komdu fagnandi Sigurður Sigurðsson! Ég var hálft í hvoru farinn að halda að einhver fjárinn hefði komið fyrir þig; kanske drukkið fáeinum staupum of mikið, eða kvænst.
En nú sé að ekkert er að óttast: Sigurður Sigurðsson er upprisinn til bloggheima, sem betur fer.
Lifi byltingin!
Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2009 kl. 22:52
Ég datt aðeins í það í nóvember og fór svo til útlanda. Síðan var ég internet laus og liðugur, en ég hef ekki fengið á broddinn síðan fyrir jól. Ég hlýt að vera farinn að eldast.
Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 23:18
Ég var að koma af Austurvelli, lágmark 2000 manns þarna rétt fyrir miðnætti og gífurleg og góð stemning. Þetta mun standa framundir morgunn :)
Byltingin er hafinn
Óskar Þorkelsson, 21.1.2009 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.