Auglýst eftir konu

6beersÉg þekki þessa konu ágætlega. En ef þið snúið myndinni við sjáið þið hvers vegna ég fæ mér stundum nokkra bjóra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Óvenju góð mynd.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.9.2008 kl. 11:52

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Mér þykir leitt að verða sú sem segir þér það Siggi minn, með þitt fallega (þó svart/hvíta) innræti, að mér sýnist af myndinni þinni að konan þurfi a.m.i. jafn marga bjóra og þú, ekki ósvipuð til munnsins... ... áttu ekki betri mynd af þér?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.9.2008 kl. 14:15

3 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Bjórinn bjargar öllu...

Haraldur Davíðsson, 15.9.2008 kl. 16:06

4 Smámynd: Gunnar Freyr Rúnarsson

Siggi!  Hefur þú ekki áhyggjur af efnahagskreppu heimsins.  Áttu kannski kjallaraholuna skuldlausa eftir togarasjómennskuna í áratug?  Við ættu kannski að fá okkur í glas við tækifæri? 

Gunnar Freyr Rúnarsson, 15.9.2008 kl. 19:41

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Jóhanna: af hverju heldurðu að a) ég drekki, b) ég bjóði dömunum upp á drykk?  Ég á víst ekki margar myndir af mér, þessi er sú yngsta, tekin þegar ég var enn ungur og hress. En ég þarf enga bjóra þegar ég sé myndina af þér Jóhanna mín.

Kjallaraholuna Gunnar? Ég bý á þriðju hæð góurinn. Með svalir sem snúa beint að KR vellinum. Hvergi betra útsýni.

Ég á íbúðina skuldlausa jájá og ýmislegt undir koddanum. Síðan átti ég þriðjung í kofa úti á landi, með tveimur gömlum vinum mínum af sjónum. Þeir eru reyndar báðir dauðir og einhver af þeirra fólki sér um að leigja skriflið til laxveiðimanna á sumrin. Meðan ég fæ minn hlut skipti ég mér ekkert af því hvaða íhalds- og framsóknarmenn veiða þar á kostnað stórfyrirtækjanna.

Ég óttast því ekki efnahagskreppuna. Ég man ennþá kreppuna miklu, að vísu óljóst. En þetta er ekki kreppa. Nú eiga allir fyrir mjólkurdreitlinum í kaffið. Ég held reyndar að efnahagskreppan í USA og Íslandi þarna um 1930 hafi komið vegna þess að þá var bannað að selja áfengi og bjór. Áfengisbann ríkjandi.

Kreppan í USA breiddist síðan út til Evrópu sem skuldaði Könunum pening vegna stríðsins og kapítalískrar ofuruppbyggingar að stríðinu loknu. Þetta sagði mér Eggert Þorbjarnarson vinur minn og ekki laug hann.

En Gunnar: hver nennir að drekka úr glasi. Maður opnar bara flöskuna og fær sér nokkra sopa. Eina sem á að drekka úr glasi er koníak. Og ég er næstum því búinn með flöskuna góðu.

Sigurður Sigurðsson, 15.9.2008 kl. 20:23

6 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Sigurður;  Hvaða bjór drekkur þú til að snúa dömum svona gjörsamlega við.  Ég held að þessi bjór gæti gert ljósastaurinn fyrir utan gluggan hjá mér meira að segja aðlaðandi.

Frjálsir bloggarar;  Mér datt í hug að stinga upp á því við þá sem ofbýður ritskoðun á borð við Morgunblaðið, Sovjetríkin, Kúbu, Kína, fyrrum Albaníu o. fl., að við boðum “fagnaðarerindið” um frjálsa bloggsíðu, með kveðjum okkar;   Munið frjálsu bloggsíðuna; http://blekpenni.com                                                                                                     

Kær kveðja, Björn bóndiïJð     

Sigurbjörn Friðriksson, 15.9.2008 kl. 20:38

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Með þessum bjór minnurðu mig rosalega á Mikjál Djakkson, Björn bóndi.

En ég vona þó að þú eigir þitt eigið nef.

Sigurður Sigurðsson, 15.9.2008 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband