Færsluflokkur: Kvennafar og fyllerí

Mjólkin hækkar (mbl.is)

Ég er nú sáttur eins lengi og brennivínið hækkar ekki meira.


Mjólk og mjöður annar hækkar
mjög er Skallinn bráður.
En typpið á mér stöðugt stækkar
og stendur hart sem áður.


Skemmtilegur dagur

Natalie-Cassidy 

Fyrir voru fési stóð /
fögur nakin gyðja
Undireins ég stífur óð /
uppá hana miðja

Ástarþráin oss var léð
ofar fremstu vonum.
Er nú oftast nefið með
oní ungum konum


Atsjú

Nú bölvum leggjum Breta á
Brown og aðra gaura þá.
Þeir asnahjörð eru
en gellurnar beru
elska má aðeins, smá.


Fagrar konur

Vér höfum verið aðeins fjarverandi, en tökum nú eftir, að síðari vísan hefur fallið niður í siðustu færslu um ljótar konur. Hér kemur hún: 

Fagrar frúr er hér að finna
á Fróni hinu blanka.
En breskar konur margar minna
á mygluost og skanka.


Ljótar konur

Ljótar konur liggja oft
ljúfar, graðar, spenntar.
Með lærin bæði uppí loft
og lappirnar glenntar.

Vil síðan bæta við vísu eftir Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld og KR-ing.

Ein gálan mér gaf undir fót
gjafmild hún var þessi snót.
Ég tott átti að hljóta
en tók þá til fóta.
Því hún var svo helvíti ljót.




 


$%($$)$($($(=%)##&/#)=$%Ö%)%$($U((#(

Af drykkjusýki eflaust dey
dátt er það um róna.
En minna virði er þó ei
en okkar veslings króna.

Ég stundum fell og fæ mér vín
á fylleríum lengi.
En aldrei fell ég elskan mín
eins og krónugengi.

Og meira að segja mellur þær
ég mætti oft í landi.
Ku kosta meira, báðar tvær
ef krónu eykst nú vandi.

En getur nú ekki'ann Harði Geiri
gert oss alla ríka?
Verðlag hækkar og vextir meiri
en vergjarnasta píka.


Mánudagur

Allt á öðrum endanum víða
ekkert virðist nást í lag.
Og ég fékk ekki neitt að ríða
alveg síðan á fimmtudag.


Farið í lax

Ekki er eftir neinu að bíða
ég ætla að drífa mig í lax.
Ég þarf þó fyrst að fá að ríða
fyrr en síðar, nei strax.


Af perraskap gamals sjómannsræfils og róna

"Lögreglan í Portland, Oregonríki í Bandaríkjunum, fékk kvartanir vegna nakinnar konu á hjólaskautum sem væri á ferð á háannatíma í borginni. Slíkt er reyndar leyfilegt í Oregon og ekki óalgengt að rekast þar á nakta hjólreiðamenn."

Bæti við að þetta er úr frétt á mbl.is. En ég vil segja af þessu tilefni:

Oft ég góni á eftir penu píunum
prúðum svona lon og don.
En veit þó hvert ég fer í fríunum
flýg beina leið til Oregon.


Mánudagar til mæðu?

Vart eru mánudagar til mæðu
er margir vilja trúa.
Fann ég mér lausláta læðu
og leyfði henni að...sjúddirarirei.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband